Heilsa, líðan og starfstengd viðhorf starfsfólks íslenskra sveitarfélaga
Heilsa, líðan og starfstengd viðhorf
Langtímarannsókn þar sem heilsu, líðan og starfstengdum viðhorfum starfsfólks íslenskra sveitarfélaga er fylgt eftir yfir tíma. Notaðst er við blandað rannsóknarsnið, langtíma panelgögn, einstaklingsviðtöl og rýnihópaviðtöl.
Eftirfarandi sveitarfélög hafa tekið þátt í rannsókninni: Akureyrarbær, Akraneskaupstaður, Álftanes (nú sameinað Garðabæ), Borgarbyggð, Fjallabyggð, Fljótdalshérað, Garðabær, Grindavíkurbær, Hafnarfjörður, Hveragerðisbær, Ísafjarðarbær, Kópavogsbær, Mosfellsbær, Norðurþing, Reykjanesbær, Seltjarnarnesbær, Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Hornafjörður, Sveitarfélagið Skagafjörður og Vestmannaeyjabær